Nokia Image Frame SU 4 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í Nokia Image Frame SU-4 fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega
með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta
stuðlað að betri endingu.

Alla aukahluti skal geyma þar sem börn ná ekki til.

Halda skal Nokia Image Frame þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar.

Ekki má nota Nokia Image Frame á rykugum og óhreinum stöðum né geyma hann þar.
Færanlegu hlutirnir í honum geta skemmst.

Ekki má geyma Nokia Image Frame á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma Nokia Image Frame í miklum kulda. Þegar hann hitnar (upp að eðlilegu
hitastigi) getur raki myndast innan í honum og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna Nokia Image Frame. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt hann.

Nokia Image Frame má ekki henda, ekki má banka í hann eða hrista hann. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
Nokia Image Frame.

Ekki má mála Nokia Image Frame. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Ef Nokia Image Frame vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda þjónustuaðila.
Starfsfólk þar aðstoðar notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

20

Hafið samband við þjónustuaðila Nokia eða kynnið ykkur staðbundnar reglugerðir um
förgun heimilistækja.